Allir sem styðja svona hernað, hvoru megin sem þeir standa, ættu að......

...fara á staðinn og skoða sjálfir sundursprengd húsin og horfast í augu við börnin, og þá dauðu, hlusta á og horfa á örvæntinguna, sogast með flóttafólkinu á stjórnlausan og vitstola flótta, á vit dauða eða algerrar óvissu. Það er samviskulaus óður til ofbeldisins að styðja annanhvorn aðilann, taka þátt í að réttlæta ofbeldið, og þar með viðhalda ofbeldinu. Áróður í formi lyga, ritskoðunar og trúarbragðanna, hefur slævt umheiminn fyrir því sem gengur á þarna. Það eru aðallega staðalímyndir af gyðingum og múslimum sem lita sýn þess fólks sem lætur glepjast, og tekur þátt í að viðhalda úreltum og afskræmdum hugtökum, viðhalda forsendunum.

Engir fjölmiðlar hér á landi hafa t.d. birt neitt annað en gefið er út að " rétt " sé að birta. Engin tilraun gerð til að horfa til þeirra sem eru fórnarlömbin, engin tilraun gerð til að sýna neitt annað  en það sem þeim er rétt......

.....það er löngu kominn tími til að heimurinn láti báða aðila vita að þessi endalausi hernaður á hendur óbreyttum borgurum verði ekki liðinn, eða hvað ?


mbl.is Landher Ísraels inn á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér Halli! Að heyra í mömmunum sem öskra af sorg, standandi/krjúpandi þarna og horfa á börnin sín sundurtætt eftir sprengjur sem ætlaðar voru allt öðrum......Mig vantar lýsingarorðin.........

Ragnheiður Arna Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 20:37

2 Smámynd: Þórður Runólfsson

Það er spurning hvort Ingibjörg Sólrún reynist börnum, konum og körlum á Gasa- ræmunni vinur í raun?

Þórður Runólfsson, 3.1.2009 kl. 20:38

3 Smámynd: Þórður Runólfsson

....eða, hver myndi senda mann með vélbyssu inní hænsnabú til að drepa mínk?

Þórður Runólfsson, 3.1.2009 kl. 20:41

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hrollur hrollur hrollur

Hólmdís Hjartardóttir, 3.1.2009 kl. 20:45

5 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ragga, það er einmitt málið, maður þyrfti að vera þarna...

....Þórður, það væri ekki arðbært hænsnabú...

Haraldur Davíðsson, 3.1.2009 kl. 20:51

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eg fæ upplýsingar aðalega frá aljazeera stöðinni í þessu máli.  Alvöru fréttamennska.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 3.1.2009 kl. 21:07

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég á heldur ekki orð.

Rut Sumarliðadóttir, 3.1.2009 kl. 22:02

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Er ekkert hægt að gera til að stöðva þessa slátrun?

Hólmdís Hjartardóttir, 3.1.2009 kl. 22:14

9 Smámynd: Óskar Þorkelsson

http://www.vg.no/nyheter/utenriks/midtosten/

Ég nota norska miðla mikið og eru þeir töluvert andsnúnir ísraelum.

aljazeera er helv gott líka. 

Óskar Þorkelsson, 3.1.2009 kl. 22:21

10 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ómar og Óskar, eftir stendur að varla er um hlutlausa umfjöllun að ræða, slíkt er erfitt að fá. Helst er að horfa á sem mest og reyna að lesa á milli líinanna.

Hólmdís, fyrst þarf að sameina heiminn gegn ofbeldinu, ég er hræddur um að þetta verði hugsanlega erfið og blóðstokkin lexía....

Haraldur Davíðsson, 3.1.2009 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband