ÆÆ, ætlaði sendiboðinn að færa okkur sannleikann?

Gott mál að  ekkert varð af þessari heimsókn. Við eigum ekki að hafa nein samskipti við þjóðir/samtök, sem gera börn að skotmörkum sínum, grimmdarlegur hernaður á hendur óbreyttum borgurum er óafsakanleg hegðun, hver sem er að verki. Svo virðist sem blóðhefndin og blóðsamviskan ráði för hér á Íslandi, svo mjög reyna menn að réttlæta gjörðir annars aðilans, Hamas eða Ísrael.

Upphafning ofbeldisins í formi blóðhefndar, eða áunnum rétti til ofbeldisverka, er sóðalegur áróður sem við eigum ekki að samþykkja, börnunum er alveg sama hver sprengir þau í tætlur.....

...tökum afstöðu gegn ofbeldinu, ekki með öðrum hvorum morðingjanum.....


mbl.is Ísraelskur ráðherra afboðar komu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Axel Jóhann Hallgrímsson, 19.1.2009 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband