Nú skaltu loka á mig Árni Matthíasson........og verði þér að góðu.

Jæja, nú er ég búinn að fá nóg af þessu helvítis ritskoðunarkjaftæði í Árna Matt. og félögum hjá MBL.IS.

Það er með algjörum ólíkindum að netsamfélag sé ritskoðað af sjálfsskipuðum siðapostulum. Árni Matt sem í gegnum tíðina hefur kennt sig við pönk og uppreisn, er orðinn að mestu HÓRU pólitískrar rétthugsunar í sögu netsins, hann lokar á fólk hægri vinstri og telur sig ekki þurfa að svara fyrir það á neinn hátt.

Nú lokaði hann á einn besta penna bloggsins og telur vefinn betur settan !

Þvílíkt fífl !

Er þetta sölumaður ? Nei. Er þetta ritstjóri ? Nei....

.....þetta er dæmigerður íslenskur hórkarl sem selur á sér rassgatið fyri EKKI NEITT!

Þér væri nær að skoða betur hvað þú ert að gera Árni, eða var það svona sem þú fórst að því að gagnrýna tónlistarmenn hér áður fyrr ?

Nú máttu vita að ég og fleiri erum að vinna í því að eyðileggja helvítis aumingjaháttinn þinn, með því að staela öllum kúnnunum þínum ! ( ekki það að það þurfi, þú ert að vinna vinnuna fyrir okkur.)

Vertu svo blessaður,     og þið hin, takk fyrir mig og sjáumst á Orninn.org hjá honum Einari Val ( jevbmaack)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

ertu þá farinn?    Trúi því barasta ekki.

Hólmdís Hjartardóttir, 8.9.2008 kl. 20:26

2 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ég get ekki tekið þátt í svona helvítis rugli, ritskoðun er eitt, en að slökkva á fólki fyrir að uppfylla ekki skilyrði um að vera " nákvæmur í tengslum við fréttir " Árni og Co eru einfaldlega búnir að liggja undir klöguskjóðum og veimiltítum sem ekki þola að neinn hugsi öðruvísi en þeir, og nú toppa þau allt með því að loka á Helgu Guðrúnu, einn albesta penna bloggsins....og fyrir hvað ?....Fyrir að vera ekki nógu nákvæm ! Því þá ekki að loka á okkur öll?

Ótrúlegur undirlægjuháttur.....

Ég ríf kjaft áfram þangað til þau loka á mig....

Haraldur Davíðsson, 8.9.2008 kl. 20:37

3 Smámynd: Ásdís Rán

ég á eftir að sakna þín...

Ásdís Rán , 8.9.2008 kl. 20:48

4 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Takk fyrir mig ....en eins og ég sagði, ég rífst þangað til þau loka...

...ef ekki...nú...þá rotna einræðisríkin alltaf best innanfrá..

Ritskoðun er eitt en að loka á Guðrúnu Helgu er náttúrulega bull, hún ætti frekar að fá viðurkenningu sem einn langskemmtilegasti penni bloggsins..ein af ástæðunum að maður nennir að vera hér...ég veit ekki hvort Árni skaut sig í annan eða báða fætur, en ég vona að það hafi verið vont...

Haraldur Davíðsson, 8.9.2008 kl. 21:48

5 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég vona að það verði ekki lokað á þig, því þá á ég eftir að sakna þín sárt.  

Sporðdrekinn, 8.9.2008 kl. 22:42

6 Smámynd: Sporðdrekinn

Nú er það hvítt! Ég fór á Orninn.com og fékk bara hvítan skjá

Sporðdrekinn, 8.9.2008 kl. 22:44

7 Smámynd: arnar valgeirsson

bíddu nú haraldur. þetta var náttúrulega pönkfærsla og árni sennilega ekki kátur. þekki ekki þetta dæmi með helgu guðrúnu sosum, en ok, þú ert fjúríus. sé það.

finnst nú óþarfi hjá þér að hætta en gangi ykkur einari vel með örninn, það er ekki það.

gaman að klikka á fólk sem setur fram sínar skoðanir svo teldu uppí tíu og haltu bara áfram hérna.

gott að vera stoltur og fínt að vera reiður. búinn að koma skoðun þinni á framfæri, vantar ekki.

arnar valgeirsson, 8.9.2008 kl. 22:55

8 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Ég skil reiði þína vel, en farðu varlega í lýsingarorðinn, það er sjaldnast mannbætandi að hafa þetta orðaval.

En ég fylgist spenntur með þessu máli. Eitt það besta við mbl.is að mínum dómi er möguleikinn á að blogga við fréttir. Þetta gefur fólki færi á að vera rödd í umræðunni. Nú ef að mbl.is ætlar að leyfa sumum að tjá sig en öðrum ekki, þá eru þeir komnir á mjög svo hálan ís.

Viðar Freyr Guðmundsson, 8.9.2008 kl. 23:34

9 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ég nota stóryrðin mjög meðvitað, ef það á að ritskoða á þessum forsendum, þá hlýtur þetta að vera ágæt ástæða fyrir ritskoðun...

...annars er eg orðinn hundleiður á þessu pólitíska rétthugsunarkjaftæði, mér þótti líka fúlt þegar það var lokað á " vin " minn Johnny Rebel, þótt ég hafi nánast aldrei verið sammála honum, svo ekki sé meira sagt, meira að segja takmörkin sem voru sett á minn besta "vin", Jón Val Jensson, eru mér gremjuefni..

...en þetta...sheesh...

Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 00:00

10 Smámynd: Rannveig H

Haraldur ég skil þig alveg enda er bæði sár og reið yfir meðferðinni á Helgu Guðrúnu. En Haraldur minn ekki fara líka,plís!

Rannveig H, 9.9.2008 kl. 08:45

11 Smámynd: Halla Rut

Þú ert ekki að fara Haraldur.....

Ha, var sett mörk við skrif Jón Vals?

Halla Rut , 9.9.2008 kl. 11:29

12 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

mbl.is verður leiðinlegt og óáhugavert ef að á að hvítskúra allar skoðanir...er tóm gamalmenni að vinna þarna orðið? ...held að það mætti lofta aðeins út og hleypa fersku fólki að sem er ekki of upptekið af pólitískri rétthugsun...jafn óþolandi og hún nú er.

Georg P Sveinbjörnsson, 9.9.2008 kl. 15:33

13 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Hvað var annars málið með Guðrúnu Helgu? hef ekki verið að fylgjast með unanfarið vegna anna á öðrum vettvangi.

Georg P Sveinbjörnsson, 9.9.2008 kl. 15:40

14 Smámynd: Emma Agneta Björgvinsdóttir

já Halli þú ert númer hérna leitt að sjá þig hætta en greinilega góð umræða komin af stað.

Emma Agneta Björgvinsdóttir, 9.9.2008 kl. 16:35

15 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Halla, ég rífst þangað til þeir loka, en hér eftir mun ég ekki bera minnstu virðingu fyrir "reglum" MBL...og já hann var fjarlægður úr " Umræðunni " um daginn, og ég þoli það verr en ég þoli hann, ef hægt er að segja sem svo..

Georg, ég er svo sammála, það var settur hemilll á það að einn skemmtilegasti penni bloggsins ( eina af ástæðunum að maður nennir að hanga hér, ) vegna ÓVIÐEIGANDI TENGINGU VIÐ FRÉTTIR, sem er fáránlegt því hún gerir akkúrat öfugt og tengir ALLS EKKI við fréttina sem hún linkar sig við.......óþolandi helv....smásmuguháttur....sennilega vegna blaðamannarígs, Helga er mun betri penni en Árni...

Ester, ég get ekki frekar en nokkur annar verið númer eitt eða neitt. Ég tek ekki þátt í neinum íþróttum, að mér vitandi...en takk samt. En ritskoðun er mér ekki að skapi svo ekki sé meira sagt, og ef hún er byggð á pjatti þá er eitthvað mikið að.

Emma, ....naglinn í hausinn.....umræðan er mikilvægari en skoðanir okkar allra. Ég gaf þeim gilda ástæðu til að loka á mig, en þau gera það ekki....en á sama tíma er ekki búið að opna á Helgu....hmmm...

Öllsömul, takk fyrir, en aðalatriðið er að ritskoðun er gátt til fasisma, og mannskepnan hefur sýnt það svo ekki verður um villst, að ef hún fær að rækta fasisma í friði, þá gerir hún það!

Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 21:54

16 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Þið vitið vonandi  börnin góð að það eru allir velkomnir á Örninn.org þar er hægt að senda inn greinar og ræða þær á spjallinu - ekki staðgengill bloggsins, en góður vettvangur fyrir greinar sem ekki hljóta hylli ritskoðunarsinna!

kv.

EVBM

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 9.9.2008 kl. 22:21

17 Smámynd: Haraldur Davíðsson

var með þetta vitlaust í pistlinum,(...........com!) og virðist ekki getað lagað það, enda örugglega búið að taka hann út.

Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 22:23

18 Smámynd: halkatla

gott hjá þér, þetta er fáviti

Það er ekki hægt að verja svona framkomu

halkatla, 10.9.2008 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband