Dalur Dalanna.......

Sko svarfdælinginn.....hehehe....litli frændi, duglegur strákur!
mbl.is Heiðar tryggði Íslandi sigur á Möltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Bjarnason er í lífshættu, ég á eggjabakka.........

BB&Co, eru búin að tala um erlenda hryðjuverkamenn í dágóða stund,     en hvaðan koma svo hryðjuverkin????
mbl.is Eggjum kastað í ráðherrabifreið Björns Bjarnasonardi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norska lögreglan hefur hafið rannsókn á innbrotinu.....

Er norska lögreglan heppilegust í það starf.....kannski BB&Co geti hjálpað þeim....

...í þessu er falin áskorun til íslenskra smákrimma að brjótast inn hjá löggunni, helst inn á Litla-Hraun og stela þar borðbúnaðinum, hehehe...nú eða hjá embætti Ríkislögruglustjóra, og stela öllum skjalabunkanum um Baug....þvílíkur arfaskandall....LoL


mbl.is Stálu tölvum í höfuðstöðvum lögreglunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er það hverfult og breytingum háð.

Kyrrð og óreiða, litir og grámi, gleði og sorg, ljós og myrkur, samkennd og sundrung. Allt er það hverfult, allt tekur enda allt líður hjá.

Hversu erfitt getur ekki verið að reyna að sannfæra sjálfan sig um að slæmir tímar líði hjá ? Kannski jafn erfitt og það er að vita að góðir tímar gera það ? Ég veit það ekki, en ég veit að það er erfitt.

Í mínum huga að minnsta kosti.

Það er undarlegt hvað maður getur átt í óþægilegum samræðum við sjálfan sig, og þær svo raunverulegar í ljósi persóna og leikenda, að maður heldur að maður sé að missa vitið.....

....ég heyri raddir....og þær eru ekkert sérstaklega vingjarnlegar..en þær eru aðeins bergmál frá hugsunum mínum svo ég get ekki þaggað niður í þeim.....

....það er líka undarlegt að maður getur verið hundrað prósent meðvitaður um að hausinn á manni er að rugla með mann, en maður getur ekkert gert í því, annað en að hanga á fingurgómunum á þeirri vissu að hausinn sé að rugla, ekki maður sjálfur.

En það er stundum samt ekki nóg og hjartað gengur í lið með hausnum, og í sameiningu þagga þau kyrfilega niður í allri samkeppni, og það stundum þannig, að ekkert er eftir nema rjúkandi rúst....en stundum sleppur maður, hryggbrotinn og í sárum, en lifandi......

Ég veit ekki hvernig maður getur greint endanlega á milli raddanna, sinnar eigin og hinna,en eitt er víst að það þarf að takast á einn eða annan hátt, eigi skipið að þola brotið...það skilur svo mjótt á milli. Allt er það hverfult og allt líður hjá, líka það slæma segja þeir....sjáum til....þeir sögðu líka að góðu stundirnar tækju aldrei enda, allt tekur enda, allt líður hjá....

...ég er hættur að skilja nokkurn skapaðan hlut í þessu brölti öllu saman, ég er þreyttur, og spái í það seinna...

...nema hvað, að undarlegast af öllu er að sjá sjálfan sig velta þessu fyrir sér, og geta ekkert gert til að stöðva sig, hemja sig, en vera samt svolítið spenntur að vita hverju maður tekur uppá næst.

Þetta var yfirlestur dagsins, góða nótt.


Horaður og veikur björn.

Her rússa er ekki sjón að sjá lengur, að fámennum sérsveitum undanskildum, er herinn illa þjálfaður og búinn lélegum og úr sér gengnum búnaði. Undanfarnar æfingar þeirra á og yfir Atlantshafi, eru tóm sýndarmennska.

Það verður augljósara og augljósara að þeir eru ekki til neinna stórræða greyin, en gætu það helst á diplómatískan máta., sem þó hefur ekki verið þeirra sterkasta hlið. Nú er bara að vona að þeir segi satt um þetta slys, og afleiðingar þess.


mbl.is Slys í kjarnorkukafbát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifi Byltingin!!!

.....er ekki BB að undirbúa sig og sína undir eitthvað aðeins púðurmeira en það..?

...ef þú kallar nafn djöfulsins nógu oft þá kemur hann....eins og kallaður..


mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki verður feigum bjargað.......

Úff, þassi maður er núna með skotskífu á bakinu.....ég spái því að hann verði drepinn áður en hann getur gert svo miklar breytingar...

.....hvað gefið þið honum langan tíma ? Ég gef honum 1 ár.


mbl.is Breytingar hafa knúið dyra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Termítar í innviðum hússins....

Það verður að teljast með eindæmum ef enginn á að svara til saka í þessum spennufíknarleikjum hjá stuttbuxnastrákunum...ef ekki telst heppilegt að sýna ákveðið fordæmi fyrir framtíðar stuttbuxnastráka nú, hvenær er þá réttur tími...? Næst þegar einhver setur ALLT HELVÍTIS LANDIÐ Á HAUSINN ?

Hvar er nú meistari greininga- og efnahagsbrotadeilda, BB ? Er máske ekki til peningur fyrir hann til að lögsækja þessa arðræningja, þessa sauða- og hrossaþjófa, þessa strandræningja......

....kannski fólk ætti bara að neita að borga nokkurn skapaðan hlut fyrir bankana......

 


mbl.is Árás á fullveldi þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífið er undarlegt sjónarspil.......

 " I was once sitting on the top of the world, I really had things in my hands....but something went wrong and I'm not sure what, but now I'm sitting here at home, alone....I lost everything I had....starting over from scratch..."

Þetta textabrot frá hljómsveitinni Morphine er þema lagið mitt núna.....mig vantar ódýrt rúm, sjónvarp, þvottavél, ísskáp.........

.....vonina og viljann finn ég vonandi sjálfur.


Samviska til sölu.....

Vill hann leggja sitt af mörkum ?!? Kannski hluthöfum í FL group líði aðeins betur..leggja sitt af mörkum ? Þó það nú væri maður, en ekki búast við að verða sleginn til riddara fyrir vikið....
mbl.is Hannes vill leggja sitt að mörkum við uppbyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband